Samfélagsfræði
Borgarnes 1. okt. 2007
Dísa Gestsdóttir
Þóra Magnúsdóttir
Einar Skarphéðinsson
Ívar Örn Reynisson
Hvanneyri, 22. nóvember, 2007
Þóra Magnúsdóttir
Ragnhildur Kristín Einarsdóttir
Ívar Örn Reynisson
Rætt um hvað við erum búin að vera að vinna í síðan síðast.
Bókin er ekki það sem á að binda okkur niður, hoppa má fram og til baka í bók, milli bóka, og má sleppa.
Setja inn tilvísanir í námsefninu þar sem ábending um í hvaða bók, síðu eða annað er hægt að finna efni. Vilji til að setja inn síðu þar sem slíkt er hægt,
Sjálfstæði
Hvað gerum við til að auka sjálfstæði nemendenda, heimildaritgerðarvinna, frjáls tími á skili á verkefnum, kenna þeim gagnrýna hugsum í verkefnagerð á heimildir, bera kennsl á góðar heimildir,
Hvernig getum við aukið sjálfstæði, nota stærri hluta af tíma í vinnu nemenda, þurfum að gefa þeim meiri tíma til að vinna sjálf, ekki gefa þeim lausnum heldur erum við að kenna þeim aðferðina að gera verkefnin,
Eigum við að hætta að kenna til samræmds prófs? og að Menntaskóli Borgarf samþykki að nota skólaeinkunn til inntöku... Athuga þarf hvort vilju sé til að koma með ályktun um það frá verkefninu Borgarfjarðarbrú og hvernig það snýr að öðrum skólum.
Frumkvæði
Hvað er frumkvæði? Vera byrjaður að læra þegar kennarinn kemur, leggja til efni, koma með gagnrýnar spurningar, frumkvæði í hugmyndafræði,
Það að þora að koma með innlegg í umræður. Þetta auðveldara í minni hópum,
Hugstormun, góð í því að nota til að ná til þeirra sem eru óframfærnir með hvatningu að svara. --- ef til vill spyrja meira um skoðanir en rétt og rangt svar,
Mikilvægt að byrja nógu snemma að byggja upp þessi vinnubrögð, heimildavinnu, samvinnunám, umræðuaðferð, viðhorfamarkmið, tjá skoðanir,
Ábyrgð nemenda
Hluti á því að byrja nógu snemma að láta þau bera ábyrgð, nemendaáætlanir, foreldraáætlanir,
Opnir skóladagar, kennarar í stofu og taka á móti þeim sem vilja læra hjá þeim,
Hvað er nauðsynlegt að kenna? Ákveðið síðar. Færniþekking, staðreyndaþekking, viðhorfaþekking. Að eldri séu mentorar yngri, jafningjafræðsla, miðla þekkingu til yngri nemenda,
Vinnulag
Heimildaöflun, úrvinnsla texta, að þekkja öruggar heimildir, textavinnsla, að finna svar úr texta, rökstuðningur, að geta dregið ályktanir út frá lesnum texta. Að nýta tímann betur, að geta gengið að verki án þess að kennarinn sitji yfir eða sé kominn. Glósutækni, skýr uppsetning á því sem unnið er. Færnimarkmið, viðhorfamarkmið. Kennsla í skipulagi bæði verkefna og í náminu almennt (taskan, heimanám ofl.), námstækni. Að vinna eftir eigin áætlunum.
Samfella
Bæði innan stiga og milli stiga. Hvernig verður það gert? Með grandskoðun námsefnis, að því sé raðað skynsamlega, að tekið sé út það sem ekki passar, aukin áhersla á nærumhverfið. Námsmat verði skoðað heildstætt, samfella þarf líka að vera í námsmati ekki síður en í námsefni.
Lýðræði innan skólans
Nemendur geti að nokkru leiti valið sér verkefni. Þeir geti valið á hvaða hátt er skilað, geti ákveðið að nokkru leiti hlutfall hvers verkefnis í lokaeinkunn. Möguleiki á að auka áherslu á frammistöðumat, minnka vægi einkunnar í skólastarfi. Aukið vægi sjálfsmats, jafningjamats (undir leiðsögn) ofl.
Fjölbreytilegar þarfir
Þarfir kennara til að hafa aðstöðu til vinnunnar. Þarna má nefna greinastofur, tækjabúnaður, pláss til geymslu pappírsgagna, aðgangur í tölvubúnað, sveigjanleiki varðandi fjölbreytta kennsluhætti, t.d. ferðir, leikhús, sýningar, söfn.
Þarfir nemenda til sveigjanleika
Þekkingaröflun
(sjá vinnulag)
Ferðir, öflug bókasöfn, heimildamat, rannsóknir, rannsóknarskipulag, vettvangsnám.
Sveigjanleiki, breytilegar þarfir, fjölbreytni í kennsluháttum
(sjá fjölbreytilegar þarfir)
Tillit tekið til þroskafrávika, hegðunarfrávika, lestrarfrávik, sveigjanleiki í námsmati. Mikilvægi þjóðfélagsfræðinnar ítrekað.
Sjálfsmynd nemenda
Tillit tekið til þroskafrávika, hegðunarfrávika, lestrarfrávika. Stuðlað að auknum sigrum seinfærra nemenda í námi. Sveigjanleiki og fjölbreytni í námsmati og verkefnum stuðlar að því. Efling sjálfstæðra vinnubragða, frumkvæðis og ábyrgðar. Nemendum látið líða þannig að þeir séu að áorka einhverju og sjái tilgang í náminu. Fjölbreytni í kennsluháttum og verkefnaskilum og námsmati stuðla að bættri sjálfsmynd nemenda.