Haustönn 2007 - Faghópar
Á haustmánuðum 2007 unnu þátttakendur í verkefninu greiningar -og undirbúningsvinnu innan hverrar námsgreinar fyrir sig. Sameiginlegir starfsdagar voru tvisvar á öninni. Þar skiptust kennarar allra skólanna í hópa eftir faggreinum og ræddu m.a. sameiginlega sýn, sérstöðu skólanna, hefðir í skólastarfi, innleiðingu nýrrar námsskrár og nýrra kennsluhátta.
Hóparnir unnu svo áfram á þessum nótum og skila skýrslum um áramót sem verða svo hafðar sem vinnugögn við áframhaldandi vinnu.
Einnig fór fram fagvinna/ umræða innan skólanna.
Skýrslur hópanna má sjá hér á undirsíðum.